Hvað er hér að gerast?

Er hér enn eitt lífeyrissjóðs ruglið í uppsiglingu?

mbl.is Allt að 100 ný störf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Náttúruleg sundurlyndi Kópavogs.

„Það er náttúrlega ekki búið að landa öllum málum en menn eru að tala saman til þess reyna það,“

Er nokkur von?


mbl.is „Ekki öll mál leyst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausn strútsins

„Á undanförnum árum hefur orkuframleiðsla á Íslandi aukist mjög og jafnframt gagnrýni á neikvæð umhverfisáhrif hennar. Einn þáttur þeirra áhrifa er sjónmengun af völdum háspennulína og hefur sú krafa orðið háværari að jarðstrengir séu nýttir í stað loftlína. Mikilvægt er að fyrir liggi pólitísk stefnumörkun um með hvaða hætti og á hvaða forsendum skuli stefnt að lagningu raflína í jörð og til hvaða þátta skuli sérstaklega taka tillit í þeim efnum.“

Umhverfisvernd í hnotskurn – aðferð strútslins – það sem þú sér ekki, er ekki!!! 

 

Hefur þessari aðferð ekki veri beitt á liðnum öldum?

 

 

 

Grafa í jörðu eða henda í sjóinn og þar með öll mengun úr sögunni!!!!!!!!

 

 

 

Eru virkilega allir sannfærðir um að strúturinn hafi rétt fyrir sér???

 


mbl.is Tíu mínútna umræða um lagningu raflína í jörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sælir eru blindir með skammtíma minni

Það vekur furðu að svona fréttir skuli koma núna. Bráðum eru fjögur ár frá því að forráðamenn samfélagsins urðu að viðurkenna að þeir höfðu verið teknir í rass..... og enn er ekki að sjá að eitt eða neitt verði gert til að endurheimta tjón samfélagsins.
Hið eina sem ráðamenn (sagðir bjargvættir samfélagsins) hafa reynt að gera er pólitíska lausn á málini og krýna einn fyrirverandi ráðamann sem geranda eins og alls! Og auðvita var séð til þess að viðkomandi væri ekki tengdur núverandi stjórnarherrum.
Við hrunið – áður enn „bjargvættirnir“ tóku við – höfðu ráðamenn (og þar fremstur í flokki þáverandi forsætisráðherra og núverandi ætlaður blóraböggull) ákveðið úttekt á „hruninu“ sem kom út í rómaðri margbinda skýrslu.
Enn er það svo að fæst í þessari ágætu skýrslu hefur verið tekið til athugunar en hins vegar hefur ýmsu marklausu ryki verið þyrlað upp til að hylma yfir getuleysi ráðamanna.

mbl.is Bjartsýni landsmanna eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel svarað Páll Magnússon!

Full ástæða var fyrir Pál útvarpsstjóra að svara þessum skrifum.
Það er í raun umhugsunarefni að eini fjölmiðillinn sem er með gagnrýna umfjöllun um okkar niður nídda samfélag sé Ríkisútvarpið – og það þrátt fyrir að hið pólitíska vald skuli reyna að múlbinda alla sem reyna að koma sannleikanum á yfirborðið.
Getur verið að fjölmiðlar eins og Mbl séu svo rækilega múlbundnir að hið eina sem er eftir í fréttamennsku hjá þeim sé SMARTLAND?

Áhugavert

En þessi litla frétt er morandi af villum. Og þá er ekki verið að velta vöngum yfir því hvort ypsílon sé í því.
Tækifærin eru mörg á þessum sviðum - en fyrir alla muni segið rétt frá.
Ég vona allavega að þeir landar sem eru eftir á Fróni - en hafa ekki flúið land vegna skulda eða vegna þess að þeir hafa óhreint mél í pokahorninu sem geymt er á "aflandseyju" - séu nægilega upplýstir til þess að vita hvað þeir séu að gera.

mbl.is Framleiðir pýrólýsuolíu úr lífrænum úrgangi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til skammar

Er nokkuð annað að gera en að beita hryðjuverkalögum?
Hvernig er það annars hér á Fróni?
Hafa menn nokkuð frekar komið lögum yfir bankana hér?
Eru bankar ekki yfirleitt hafnir yfir samfélög siðaðra manna en geta krafist út í hið óendanlega ef eitthvað „misferst“ hjá þeim?
mbl.is Bankastjóri RBS fær vænan bónus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál

En samt kemur upp sú spurning?!?!?
Hvað hefur orðið af þessum 14+% sem hver launþegi greiðir til nærsamfélagsins?
Getur verið að nærsamfélagið geri ekki ráð fyrir öðru en launum fyrir sig og sína?
Getur verið að eftir sé að einkavinavæða óvæntar snjókomur?

Gott mál

En samt kemur upp sú spurnign?!?!?
Hvað hefur orðið af þessum 14+% sem hver launþegi greiðir til nærsamfélagsins?
Getur verið að nærsamfélagið geri ekki ráð fyrir öðru en launum fyrir sig og sína?
Getur verið að eftir sé að einkavinavæða óvæntar snjókomur?
mbl.is Slökkvilið biður fólk að moka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er geta til þess?

Ekki gátu íslendingar einu sinni varðveitt geirfuglinn.
En voru svo heppnir að geta keypt einn mölétinn frá Bretlandi sem hefur síðan verið varðveittur í kassa hér og þar á liðnum áratugum - eftir hin frækilegu kaup.

Er ekki nóg að hafa netssíðu sem vísar á erlend náttúrusöfn?


mbl.is Safnkostur lítill og fábreytilegur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband